Færsla 4 : Edrú líf betra líf?

2024 tók ég áfengislaust ár og núna er það eitt af því besta sem ég hef gert.  

 

áfengi er flókið consept fyrir mér. 

 

hvað er eðlilegt og hvar er línan. þetta er blurr fyrir mér. þetta er kannski ekki blurr fyrir öðrum og kannski kunna sumir í alvörunni að fara með áfengi... ég veit það ekki. 

 

en fyrir mitt leyti og mitt líf er það trilljón milljón sinnum betra, skemmtilegra og real heldur en með áfengi í því.

 

Ég er búin að skrifa heila aðra færslu um þetta. Ég á erfitt með að koma þessu frá mér. Ég hef margt um þetta að segja en við skulum hafa þessa færslu á léttu nótunum. Eða reyna það..

 

Ég er ekki að hætta að drekka áfengi af því ég á átti í vanda með það en ég skal viðurkenna að ég var hrædd um að það myndi leiðast þangað.... ef ég myndi ekki hætta.

 

Þannig er nefnilega mál með vexti að áfengi er ávanabindandi og áfengi er líka eitur. Áfengi deyfir okkur og blörrar línurnar, þegar við drekkum áfengi þá gleymum við skildum morgundagsins sem getur haft þær afleiðingar að við sækjumst í það til að díla ekki við raunveruleikann og lífið sjálft. 

 

Þannig vil ég ekki lifa mínu lífi. Ég vil vera vakandi. Taka ábyrgð. Vera eins mikið ég og ég mögulega get og áfengi blokkar það allt saman. Fer á móti mínum persónulegu gildum og passar ekki inn hjá mér,,

 

Ég hef átt allskonar tímabil og varð mamma ung þannig ég hef oft drukkið mjög lítið eða ekkert árum saman, svo hafa komið tímabil sem ég fer út og skemmti mér með vinkonum mínum allt sem myndi bara teljast eðlilegt og í lagi. 

 

Þegar ég segi að ég hafi verið hrædd um að þetta yrði vandamál er af því ég hef líka komið sjálfri mér á óvart og gekk í gegnum mjög erfitt sumar 2021 þar sem ég hafði ekki drukkið í 2 ár nema á stórum útihátíðum en þessi erfiði tími leiddi mig í það að ég fékk mér einn bjór á kvöldin til þess að slaka á og gleyma. einn bjór hljómar svo saklaust og ég veit um fullt af fólki sem fær sér einn bjór á hverju kvöldi... frá því að drekka ekki neitt í einn á kvöldin fann ég hversu mikil áhrif einn bjór hefur.. að mínu mati er þetta deyfing og flótti og getur triggerað vandamál ef við erum að ganga í gegnum erfiða tíma. Það er það allavega fyrir mig. 

 

Í lok ársins 2023 eftir að við komum heim frá balí um sumarið tók við að strákurinn minn fór í pabbahelgar. Þetta hefur verið það erfiðasta sem ég hef þurft að gera í öllu lífinu. Brýtur í mér hjartað að þetta hafi þurft að fara svona en ég fann sjálfa mig vera deyfa mig og gleyma mér þessar aðra hvoru helgi þar sem strákurinn minn var ekki hjá mér. Þá fór ég út að "skemmta mér" með stelpunum. 

 

Eftir tvo mánuði af þessu (sem betur fer var það ekki lengri tími) en það var nóg fyrir mig, þá hugsaði ég með mér ef ég hætti þessu ekki núna verða allt í einu liðin 4 ár og ég ennþá úti blindfull á barnum aðra hvora helgi. Það er hreinlega ekki lífið sem mig langar í. 

 

Svo ég taki það líka fram að þá er ekkert að því að fara út að skemmta sér!!! Halló þá á að vera skemmtilegt! En þetta hjá mér var ekki skemmtun það var flótti og ekkert annað. Stundum eru tilfinningarnar svo stórar og miklar að það er erfitt að horfast í augu við þær, stundum eru þær meira að segja búnar að vera byggjast upp í langan tíma eða alveg síðan úr æsku. Galdurinn er að finna þær og leyfa þeim að kenna okkur en ó guð hvað ég skil vel að gera það ekki og það er svo margt sem tekur athyglina okkar eitthvað annað og stundum er það bara sem við þurfum í einhvern tíma <3 

 

En að aðeins léttari nótum þá langar mig að segja ykkur aðeins frá því hvernig þetta áfengislausa ár var : !!!

 

Ég held ég hafi aldrei farið jafn oft út að SKEMMTA MÉR. Í ALVÖRUNNI að SKEMMTA mér!! ÁN ÁFENGIS. Ég fer út af því MIG langar það. Ég get alltaf keyrt heim eða farið þegar mig langar. Ég segi ekkert sem ég meina ekki, og fer ekki á trúnó!! Ó guð þegar ég drakk þá var ég á trúnó aaaallt kvöldið eina sem ég vildi gera. Núna segi ég bara nei takk ég er að skemmta mér. Mér finnst fátt skemmtilegra en að gera mig sæta og fína, hitta vini og vandamenn og dansa með vinkonum mínum!!! gahhh what a time to be alive.

 

OG þetta er ÉG! ekki áfengi sem gefur mér kjarkinn. Ef ég hef eitthvað að segja um það að: "áfengi hjálpi sumum að sleppa sér, tala við fólk og að það geti dansað". PLSSSS lærið að vera ekki feimin og tala við fólk og dansa og skemmta ykkur án áfengis!!!! gahh það er svo TRYLLT að vera EDRÚ og muna eftir geggjuðum kvöldum og eiga yndislegar minningar og gera ekki eitthvað heimskulegt ókei jú bíddu ég hef alveg gert heimskulega hluti og ég er örugglega bara ruglaðri edrú en full en gaddmnit það er lika svo frelsandi að vera bara mannleg og gera mistök og TAKA ÁBYRGÐ á því sem ég gerði og owna það og ekki kenna einhverju áfengi um minn fíflagang. 

 

 

Edrú líf betra líf? 

EDRÚ LÍF FRJÁLST LÍF!!!!! 

 

 

Takk fyrir að lesa elskurnar, munið svo bara gera ykkur. Þetta virkar fyrir mig og mér hefur bara liðið betur þannig ég sé ekki ástæðu á að bæta þessu einhvertímann aftur inn í líf mitt. En maður veit aldrei. Fylgjum bara hjartanu og reynum að gera það sem er best fyrir okkur hverju sinni. En við erum mennsk svo við munum ekki alltaf gera það

 

Lovjú guys. Mana ykkur að prófa að fara að dansa án áfengis og kannski getiði það og þá eru þið geggjuð, eruð geggjuð either way <3 

 

 

 


Færsla 3 : Rant!!!

 
Jæja þá eruð þið búin að fá að heyra af því hvernig instagramlausa árið gekk. Vúhú!
 

En ég átti eftir að segja ykkur frá því hvernig mér finnst að vera komin aftur :))

To be honest. það er ekkert spes (hélt það yrði meira hype) ég missti í raun og veru ekki af neinu. En ég vissi líka að það yrði þannig.  

 

Núna er ég reyndar komin með nokia síma þannig ég fer aðeins á instagram í tölvunni og þar að leiðandi meira mindful og meðvituð um tímann sem ég eyði þar inni. Það tekur allt lengri tíma, að pósta í story er ferli og tekur sinn tíma. 

Ég er ennþá að finna minn takt þarna inni og hvernig ég vil nýta þennan miðil.. vil ég nýta hann? eða er hann að fara á móti öllu sem mér finnst rangt???

Ég finn þörfina og löngunina fyrir likes og follows ennþá. wtf...!

Ég man þegar ég hætti 1 janúar 2024, og við systurnar tókum svo sæta áramótamynd af okkur öllum saman. Ég varð að koma þessari mynd út í kosmósið!!

afhverju? athygli?

ég allavega losnaði ekki við það og það endaði með því að mamma póstaði henni á facebook og taggaði okkar. gahhhh hahahha.

Það létti allavega á þörfinni að hún væri komin út fyrir almenning að sjá? hvað er þetta eiginlega í mér eða í okkur? Þarna var þetta svo augljóst því ég var búin að taka grammið í burtu og vissi eiginlega ekki hvað ég átti að gera við mig.

Pósta á faceboook???? í alvöru embla? mér fannst þetta eiginlega bara fyndið ,og ég var forvitin að sjá hvort að athyglissýkin eða hvað þetta nú væri færi ekki með tímanum. 

Ég get fullyrt það núna eftir heilt ár er hún ekki enn farin. Ég póstaði meira að segja í story í gær öööölllum (nánast) skvísumyndunum sem instagram missti af árið 2024, mér fannst það reyndar hilarious! En á sama tíma og það er fyndin af hverju þurfti ég að gera þetta??

Untitled design (3)

Er ég ekki að validatea mig nóg sjálf? Gaddamnt it. Ég vil vera fullviss um mig sjálfa og að ekkert geti ruggað mér. Þess vegna er ég að þessu.

(held ég)

Smá útúrsnúningur hér : 

En ég var orðin háð nikótíni. Ég tók það líka út hjá mér á sama tíma (mér finnst hræðilegt að viðurkenna þetta hahah en það er saga, kemur seinna)

OG ég tók áfengislaust ár árið 2024(ennþá stærri saga!!) stay tuned

Þetta voru semsagt hin áramótaheitin mín sem ég náði líka! STÓRT húrra fyrir mér þarna!!! 

En eins og ég var að segja þá vil ég ekki vera háð neinu sem gefur mér ekki raunverulega fyllingu (fulfillment) & ég vil heldur ekki neitt stjórni mér. 

Ég vil nefnilega vera vakandi, meðvituð helst ekki í matrixinu já ég kýs alltaf rauðu töfluna yfir bláu. "Ignorance is bliss" eins og sagt er en ég gæti ekki verið meira ósammála. Hræsni og að horfa framhjá hlutunum er eitthvað sem ég er með ofnæmi fyrir kv.vegan konan :**

 

Markmiðið mitt er alltaf að vera ekki hræsnari. Mér finnst það mest ósexý í heiminum. Ég er það alveg sumstaðar. En ég er alltaf á leiðinni í þá átt að vera það ekki. Á batavegi í svo mörgu, þetta er alveg endalaust. 

 

En er það ekki líka ein veikin í dag, við erum aldrei NÓGU GÓÐ GAHHHH... 

 

Það sem við sjáum á þessum miðlum, er MEIRA MEIRA MEIRA vertu betri. Þú ert ekki nóg. Kauptu þetta fáðu hitt. Lýtaaðgerðir er eins og að kaupa sér föt í dag og svo er photoshopp svo gott að þú tekur ekki einu sinni eftir því þegar fólk hefur breytt sér eða slétt á sér húðina. Þessu er ég rosalega á móti og hef aldrei gert og mun aldrei gera. (og ef þú eða einhver sem þið þekkir hafið photoshoppað þá no shame, ándjóks, hvernig á maður ekki að gera það inná þessu :( ) Þótt það sé engin að segja það beint (vertu flottari, betri og heitari!!) þá eru þetta áhrifin sem þetta app hefur. Það er eiginlega ótrúlega alvarlegt ef við pælum í því. 

Það er líka ótrúlega erfitt að komast hjá þessu því við erum öll með GRUNNþarfir sem eru: sérðu mig, heyrirðu í mér og skipti ég máli<3 miii. Þurfum þetta til að lifa af eða gerðum það allavega þegar við fæddumst og þangað til að við lærum að elska okkur wholeheartedly til þess þurfum við að vinna úr traumum og sárum.

Correct me if i´m wrong.

 

Gaddemnit ég var líka að lesa grein rétt í þessu um konu sem hætti núna á öllum samfélagsmiðlum, ég ætti að láta linkinn fylgja. Það kveikti aftur í öllu sem ég er frekar sammála um. 

https://www.visir.is/g/20252672731d/kvedur-samfelagsmidla-fyrir-fullt-og-allt?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTAAAR27SdkfhbVQ1845zlLV-qCwHAS08U7z5yJmeRUgfnmYBpUnlm7qeQnlKGg_aem_Rqxy3qsbSLWu3cXU1EsPrw

Stoppum þetta hér. þetta átti bara að vera smá food for thought...

ekki taka mér of alvarlega

ég er bara stelpa með vangaveltur eins og við vonandi öll erum með. Pælum og hugsum fyrir okkur sjálf 

Oh núna er ég að hugsa um svo gott tiktok myndband sem ég verð eiginlega að setja inn. lol 

 

Pssst p.s !!! þið skiptið öll ótrúlega miklu máli og það þarf engin að sanna það fyrir neinum. Við erum nefnilega nóg eins og við erum akkúrat núna beibís. But its a journeyyyy að fatta það sjálfur, vonandi eru þið öll á leiðinni þangað <3 

lovju guys. 

 


Færsla 2 : Instagram lausa árið mikla!!

 

Hæ honnís! <3

 

Nú skal ég segja ykkur frá því...

Hvernig var árið 2024 án Instagrams í RAUN OG VERU??? 

 

Byrjum kannski á því að segja frá þvi afhverju mig langaði að taka instagram út hjá mér..í heeeilt ár...

Jú til að benda á það augljósa held ég að ég geti næstum því fullyrt að við séum öll notendur & neytendur þessa miðils, af öllum hinum samfélagsmiðlunum notaði ég þennan langmest. Þú gast ekki náð í mig ef þú sendir mér ekki skilaboð í gegnum instagram... damn þetta hljómar illa en ef við eigum að vera hreinskilin þá var ástandið orðið svolítið slæmt... 

Núna erum við búin að vera með snjallsíma og samfélagsmiðla í rúman áratug.... guys that´s aaaalot.

Ég hugsa svolítið svona.... : "Damn við erum búin að vera að skrolla í 10 ár, langar mig að gera það næstu 10 árin...??? svarið er, nei."

Don´t get me wrong það er allskonar jákvætt við þetta allt saman. yin og yang. svart og hvítt. jákvætt og neikvætt lykilatriðið er að finna jafnvægið balancinn og það er leikurinn, i get it. but let´s face it við erum ÖLL háð símanum, skulum viðurkenna það, höldum að við getum ekki lifað án hans (já þetta er ógeðslega þægilegt) en þegar eitthvað gefur okkur svona auðveldlega dópamín og er fíkn þá getur verið svolítið erfitt að finna BALANCE-inn okkar. 

Stundum þarf maður að fara yfir í annað ÖFGA (ekkert instagram í heilt ár) úr því að vera á instagram allann daginn til að finna jafnvægið hjá sér... Ég virka svolitið þannig allavega.

Allt eða ekkert týpa -- leitandi að jafnvæginu í myrkvinu. (dramatísk, ég veit)

En hér kemur sannleikurinn... Janúar og febrúar fór vel af stað hjá mér, ekkert instagram,ekkert mál!

Svo varð ég einhvað lítil í mér einn daginn og fann loophole....

TIKTOK var loopholeið..!!!! reglan var bara ekkert gramm.... þótt að ástæðan fyrir því að hætta á gramminu hafi verið sú að hætta öllu skrolli og fá dópamínið mitt við það sem væri hollt og gott fyrir mig eins og að hugleiða, stunda yoga, útiveru, hreyfingu já eða jafnvel journala.... 

en nei ég náði í tiktok... það gaf mér huggunina sem mig vantaði á þessum tíma.. og hlátur damn tiktok var fyndið og lét mig hlægja áður en algorithminn fór að ná mér. hægt og rólega byrjaði tiktok að þekkja mig og varð frekar dramatískt og væmið. gaddamnit. það var ekki aftur snúið.

fyrir þetta hafði ég aldrei átt tiktok og ég varð hooked (SURPRICE) þarna fór ég að pósta og skrollaði allt árið frá mér, inná tiktok í staðinn fyrir instagram....húrra fyrir mér.

úff anyways

það sem ég fýlaði við tiktok var að maður var ekki að fylgjast með neinum og stalka,( það eru bara random myndbönd sem poppa upp af fólki sem ég veit ekkert hver eru og mun líklegast ekki sjá aftur. Þegar ég póstaði, pældi ég ekkert í likeum eða hverjir sjá þvi það er svo óútreiknanlegt og ég er varla að fylgja neinum þar þannig ég var ekki með neinar væntingar..

Þar gat ég ekki verið að pæla hvað hinn & þessi voru að gera og gat verið meira í raunheimi eins og mig langaði líka,

treysta á það sem er að gerast í lífinu mínu, face to face en ekki fara að ofhugsa einhver likes og follow.... let´s be real, ég er ekki mikið að ofhugsa eða pæla í þessum hlutum en ég væri að ljúga ef ég verð ekki vör við þetta. 

Ef þið pælið aðeins í því þá er galið hvað maður getur komist að miklu þarna inni (þið vitið alveg hvað ég er að meina) upplýsingarnar sem koma manni ekkert við svo er þetta bara flest allt gisk og gátur. nema hjá okkur stelpunum við vitum nákvæmlega what´s upp (intuition powerss)

En núna er ég komin á eitthvað rant og ætla að reyna stoppa það áður en þetta verður alltof langt hjá mér.

 

Lokaniðurstöður: 

-Það er gaman að sýna sig & sjá aðra <333 ég er að leita að mínu jafnvægi þar (2025 er ég komin með dumbphone/samlokusíma, og nota miðlana í tölvunni very mindful, very demure eins og þau segja á tiktok :)

- að taka þátt í netheimum og hafa gaman  while i´m at it án þess að missa af raunverulega lífinu sem er hér og nú sem skiptir mig öllu heimsins hjartans máli. 

gæti talað endalaust um þetta og það eru margir aðrir vinklar en segjum þetta gott í bili :*

-þangað til næst

 

xoxo - dramatísk og væmin

p.s lovjuguys

 

 

Takk fyrir að lesa vá ef þú last allt áttu skilið eitthvað ótrúlega fallegt <3


Færsla 1 : Kom sá og sigraði!!

Komið sæl og blessuð kæru vinir.

 

Ég er mætt á bloggborð internetsins en þetta er alls ekki eini staðurinn sem ég er mætt á, neeei. Því í lok ársins 2023 eða nákvæmara sagt um áramótin 2023-2024 voru áramótaheitin af stærri gerðinni, já vinir, við stefnum hátt og það er SVO gaman að segja frá því NÚNA árið 2025, 7 janúar að þeim var ÖLLUM NÁÐ!!!!

 

Eitt af áramótaheitum 2024 voru nefnilega út með instagram bara ÚT með það!! bless og takk fyrir. Og það er líka það sem ég gerði.

Kl 3 um nótt 1 janúar 2024 þegar ég var komin upp í rúm eftir gott áramótapartý, keyrði ég heim og skrollaði upp í rúmi í síðasta skipti á þessu ári..! Eða það var það sem ég hélt.....(meira um það í næsta bloggpósti)

Svo akkúrat kl 3 um nóttina sagði ég bless við instagram appið og eyddi því, & leit ekki um öxl í heilt ár! ég fann meira að segja fyrir létti eftir því sem leið á, eins og það væri stress farið úr mínu lífi sem ég vissi ekki einu sinni að væri þar.

Svo ári seinna liggjandi uppí rúmi varla búin að opna augun teygði ég mig í símann, spennt að sækja instagram aftur, já ég var orðin spennt fyrir þessu. Það gerðist í október að mér fór að hlakka til að ná í þetta app aftur og sjá hvað beði mín.. Ég á líka svo margar mergjaðar systur og vinkonur sem eru alltaf að setja svo fyndið og skemmtilegt þarna inn og ég var orðin spennt að missa ekki lengur af því sem þær eru að gera og getað likeað allt hjá þeim <33

Fyrsti janúar 2025 kom, appið lent aftur í símanum og stelpan byrjuð að skrolla..... 

 

Í næstu færslum hjá mér fáið þið að heyra af því hvernig árið án instagrams gekk í raun og veru.... & hvernig mér finnst að vera komin aftur. 

Ég pæli mjög mikið í þessum netheimi og í instagram appinu sjálfu. Þetta er svo stór partur af lífi okkar í dag en hversu stóran part viljum við að þetta eigi í okkar lífi og hver eru raunveruleg áhrif þessara appa... meira um þær vangaveltur seinna. lovju guys

 

p.s ég er svo pepp að vera byrjuð að blogga það er svo mikil stemming og þið eruð svo heppin að fá að fylgjast með ef þið viljið (frjálsvilji og allt það<3))

endilega byrjið bara líka að blogga þá getum við verið bloggvinir sem er svooo gaman (held ég) ég var bara að byrja 

 

Þangað til næst, xoxoxo


Um bloggið

öll mín helstu leyndarmál

Höfundur

Embla Ósk Draumland
Embla Ósk Draumland
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 1206 2
  • Untitled design (3)
  • Untitled design (3)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband