9.3.2025 | 10:54
Færsla 5 : Jæja, ég er hætt á samfélagsmiðlum
Núna er liðin mánuður síðan ég kom aftur á Instagram. Ég nota einungis Instagram í tölvunni sem er út á fyrir sig SNILLD og algjört hack. En hef sótt appið í símann þegar mig langar að pósta í story og þegar ég póstaði 3 myndum í röð á feedið.
Ég nota samlokusíma. Þannig ég er ekki með nein önnur öpp eins og Snapchat og Tiktok. Facebook og instagram kíki ég á í tölvunni
Eitt sem ég hef að segja við því hversu mikil snilld það er er að nota þessi forrit einungis í tölvunni er : Ég opna instagram og ég er þar í mesta lagi í 5-10 mínutur. Talvan heldur manni ekki eins og skjárinn í símanum gerir!! Ég opna þetta sé hvort ég sé með skilaboð, svara þeim. Opna/vel þau story sem ég vil sjá og svo loka ég forritinu.
Útfrá þessu hef ég komist að þeirri sorglegu staðreynd. Ef þetta er í alvörunni tíminn sem ég ´þarf´ inná þessu appi guð minn gódur hversu miklum tíma erum við búin að vera eyða...?
En það er líka það sem eg fann í jan-feb 2024 þegar ég var ennþá með símann (iphoninn) en engin öpp að maður er lika bara háður símanum sjálfum.. eða það er vani skal ég segja, þegar maður er með símann alltaf á sér þá er svo mikill vani að grípa í hann þegar það kemur dauð stund. og BOOM dettum i doom scrooll og dýrmæti tíminn okkar er flogin útum gluggan.
Þetta er svakalegt. Mér líður svolítið eins og ég sé að vakna upp frá martröð... Þetta hljomar dramatískt en þannig liður mér. Ég er búin að vera i miklum hugleiðingum með þetta og búin að prófa allskonar.
Ég er bara að vakna upp og sjá þetta betur og betur. (Rauða pillan er farin að sýna mér þetta núna..)
Martröðin er sú að það kom einhver og rændi tímanum frá okkur. Við vorum við hesta heilsu og í blóma lifsins, sum okkar voru að ala upp börnin sín og fæða þau en tíminn týndist og við misstum af þeim, okkur sjálfum og lífinu sjálfu þvi hausinn okkar var límdur við skjá.
Hversu soooorglegt!!!! Leitandi að einhverju til að fylla holið innra með okkur EN eina sem gæti mögulega fyllt það er fólkið okkarí raunheimi!! Og að skapa & vera til. Finna það sem við þurfum að finna. að lifaí mómentinu og læra á okkur sjálf ekki að fylgja einhvrjum trendum eða öðru fólki. gahhhh hvað erum við búin að vera gera?!?!
Það sorglega er: að þetta var ekki martröð.,. Þetta er raunveruleikinn og síðustu 10 ár eru farin útum gluggann.
Ég veit, Þetta er brútal hjá mér en þetta er líka brútal dæmi. OH það er svo engan veginn hægt að koma öllum hugsunum mínumog líðan mín fyrir í aðeins einum pistli.. En
Ég er búin að vera að vega og meta og tók árspásu og ætlaði að koma til baka og vera við stjórn en BOOM
Það sem eg er ennþá að díla við þrátt fyrir pásuna er : Að vilja líta X út. Fá Validation. Hugsa að þegar ég ferá eitthvern X stað geri X að þá get ég póstað fullkomna póstinum á feedið = Validation.. (smá saga varðandi þetta)
Ég man fyrir ca 10 árum þegar Instagram var að byrja þá ég var svo spennt að gera ákveðna hluti og náákveðnum myndum til að deila svoá instagram feedið mitt svo það liti vel út (og ég liti ve út).... (sounds familiar?? hehe) Svo áttaði ég mig á því á þessum tíma hversu brenglað þetta væri þá voru ekki allir farnir að hugsa svona.. þetta var ennþa svo saklaust tæki. en kids núna er þetta the absoulout NORM!!!!
Ég veit ég er ekki að segja neinar fréttir en mál með vexti og mál með mig. Ég vil ekki lifa svona því þá er svo auðvelt að ruglast á því sem er í alvörunni það sem mig langar að gera eða er ég að gera hluti fyrir trend og validation..?
Eins og ég segi örugglega í hverjum pistli ég vil ekki lifa mínu lífi svoleiðis. Ég er nefnilega að reyna að læra að lifa lífinu fyrir mig og fylgja því og læra og finna það sem það er sem ég vil virkilega vera að gera og nýta tímann minn í ( Því hann er svo mikilvægur, krakkar hann er allt!!!)
Ég held að þetta muni ekki hætta hjá mér svo lengi sem ég er að nota þetta app... Það sem ég pæli líka í og mun eflaust sakna er fólkiððð.... en
Þetta er eins og að vera í endalausu talking stagesi og svo áttaru þig á því að BOOM þetta er ekki að fara neitt lengra.
(þegar þú áttar þig á því eins og ég er að gera núna þá eru bara tveir möguleikar: to be continued þessir möguleikar koma neðar í þræðinum)
Þetta er klárlega það sem er að halda mér þarna .. :
Þau sem þú ert að fylgja og þér finnst hún/hann nett/ur þú fílar hvað manneskjan er að sýna og þér finnst gaman að fylgjast með þeim. Þú færð vibeið að þú myndir ná vel með manneskjunni ef þið mynduð hittast og kynnast út frá því hvað hún/hann sýnir.
Þið likeið allt hjá hvor öðru, kommentið stundum eða sendið skilaboð but that's it.............................................
Þetta gefur þér just enough svo þú sækir ekki í meira.
& þetta verður ekki meira og kannski er það allt í lagi.
Ég persónulega elska að kynnast nýju fólki og eignast fleiri vini. En ég á alveg ótrúlega góða vini og fjölskyldu og er meira en sátt og þakklát með þau öll út líf mitt. Halló, Þau eru líf mitt!! En afhverju eru þá netvinirnir að hafa svona mikið vægi..? Skiljiði hvað ég meina?.. Er það ekki bara þá like, comment og feedbackið til baka í echohellinum sem er ávanabindandi.. Þetta er ándjóks svo skrítið dæmi, þá er ég að tala um fíknin í þetta. hot and cold. The unknown. Meira meira meeira en í raun er ekkert meira.
Ég held að samfélagsmiðlar séu bara flókið dæmi og lúmskir. Eins og ég sagði í fyrri pistli og það sem ég upplifði þegar ég tók instapásuna var það að það var eins og það væri farið stress úr mínu lífi sem ég VISSI ekki einu sinni að væri þar.... skiljiði. Flókið dæmi.
En þessir tveir möguleikar eru þessir.
Halda áfram að sinna viðhaldinu. Fá just enough svo ég geri ekkert merkilegt við líf mitt og missi af því eða...... ég hætti.
Og valmöguleikinn minn at the moment er sá seinni. Ég ætla að hætta á instagram. Ég þarf að prófa það. Nei þá er ég að meina hætta alveg. Kannski ég hætti líka alveg á facebook...? Ég vil losna við að hugsa útí myndirnar sem ég mun taka og frekar lifa FULLY in the moment. Sem ég geri upp að vissu marki. En skiljiði ég vil fara alla leið með þetta. Ég vil finna hvernig er að vera aaaalveg án og losna við þetta crave for something, sem er ekki neitt. Gaddmnit.
Því allt gerist í alvöru raunheimum með alvöru tengingar og með alvöru fólki.
Ég er ekki að segja þér að hætta á samfélagsmiðlum. Það þarf ekki að vera það sé það rétta fyrir alla og það þarf alls ekki að þýða að þetta sé raunveruleikinn fyrir alla.
En ég heyrði góða lýsingu á þessu og hún hljómaði eitthvernveginn svona: Ef allir í heiminum væru háðir áfengi þá myndi engin vakna og sjá að þetta væri vandamál því þá gætum við aldrei átt samræðurnar um þetta. Málið með samfélagsmiðlana er svipað sorry guys hate to brake it to you. Og ef þú ert að lesa þetta og hugsar ég á ekki vandamál þá ertu steinsofandi elskan og það er allt í lagi það er líka í lagi en það verður sársaukafullt að vakna ég get sagt þér það núna út frá því sem ég er að upplifa akkúrat núna.
Þetta verður erfitt og ég veit ekki hvernig þetta fer en ég verð að gera þetta núna. Það er komið af því.
Ég hef það á tilfinningunni að lífið muni bara verða betra
Öll ást mín til ykkar ég veit þetta var hardcore póstur en þetta eru bara mínar hugleiðingar at the moment
Við erum öll forever changing og eigum skilið að vita hver við erum án stanslausar áhrifs alls í kringum okkur.
Þú veist nóg og þú þarft ekki að fá fleiri upplýsingar
Núna er komin tími til að finna hvað ÞÚ vilt (ég) (og þú ef þú vilt taka þetta til þín) og þá samþætta allar þær upplýsingar sem þú hefur fengið og vilt nýta þér.
Lífið er í raunheimum
Samfélagsmiðlar er frontur og feik
Bæ beibs, takk fyrir að vera öll svona æðisleg, ég hef sko alveg fundið fyrir því & veit þið eruð það.
Instagram aðgangurinn minn verður opinn og ég mun halda áfram að blogga en ég mun ekki tilkynna það. Ef þú vilt vera í sambandi við mig þá skaltu bara láta mig vita og við finnum aðrað leiðir
xoxo
lets do this thing
Um bloggið
öll mín helstu leyndarmál
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.3.): 24
- Sl. sólarhring: 24
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 2057
Annað
- Innlit í dag: 18
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 17
- IP-tölur í dag: 17
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning